Við Óskar skruppum til Kaupmannahafnar um síðustu helgi að hitta dóttur hans
Kristínu og Birgir mann hennar. Þau voru þar stödd um helgina, voru mörg hundruð
íslendingar þarna þessa helgi, það er kannski þannig allar helgar. Þetta var í
fyrsta skipti sem ég fór yfir Stóra belti og fannst mér það alveg ótrúlegt mannvirki.
Þetta var skemmtileg ferð og gekk vel. Við fórum á bílnum vorum að hugsa um að
fara með lestinni en hættum svo við það.
Til baka |