Það er ekki hægt að segja að maður sé duglegur að skrifa í þessa dagbók! En hér
í Odense er allt með kyrrum kjörum. HCA jólamarkaðurinn opnaði um síðustu helgi
og var mikið um dýrðir. Hann er hér í næstu götu . Við erum að undirbúa heimferð
og Óskar er búinn að kveðja félaga sína í OTS. Við fengum slæma flensu og erum
rétt að skríða saman, gott að vera búin með þetta áður en við förum. Ég dunda
mér við að skrifa jólakort og pakka inn gjöfum, líka gott að vera búin að því.
Skötuveisla verður á Hamri hjá okkur nánast um leið og við erum lent!! Það verður
skemmtilegt að hitta fólkið.
Til baka |