Gagnrýni - sunnudagur 29.mars 2009 19:17 - Elísa Arnarsdóttir - Lestrar 39 -
Athugasemdir (0)
Ásta Júlía Aðalsteinsdóttir og Ívar Örn Björnsson í hlutverkum sínum
Blaðamanni Landpóstsins áskotnuðust um helgina tveir miðar á leiksýninguna Stundum og stundum ekki, sem sýnd er að Melum í Hörgárdal. Blaðamaður dró borgarbarnið unnusta sinn
í sveitaleikhús á laugardagskvöldið. Bylur var úti og hálftíma keyrsla í leikhúsið
svo unnustinn var ekki par ánægður með planið, en lét sig þó hafa það og uppskar
hina mestu skemmtun.
Leikfélag Hörgdæla hefur sem áður segir farsann Stundum og stundum ekki eftir þá félaga Franz Arnold og Ernst Bach til sýningar um þessar mundir. Leikarar
eru um 15 talsins en fjöldi fólks kemur að sýningunni. Það er Saga Jónsdóttir
sem leikstýrir verkinu en þetta er í fjórða skipti sem hún leikstýrir hjá Leikfélagi
Hörgdæla.
Verkið fjallar í stuttu máli um stjórnarráðsritara sem er orðinn þreyttur á því
að vera sniðgenginn þegar stöðuhækkanir eru veittar og ákveður hann því að taka
til sinna ráða. Fjöldi fólks blandast svo í málið, samstarfsfólk hans, hinir
ýmsu embættismenn og missaklausir hótelgestir og verður úr því mikil ringulreið.
Verkið er mikil ádeila á þá ritskoðun og leynd sem oft virðist vaka yfir stjórnmálaheiminum.
Sagan kann ekki að hljóma mjög spennandi í fyrstu en hún virkar vel í svona farsa.
Leikritið varð spennandi strax í byrjun og aldrei var langt í hláturinn.